
Furðuhlutur á Akureyri reyndist vera kennari
16:03 › 20. maí 2012„Þetta var bara svifvængjaflugmaður,“ segir Sigurður Sigurðsson, varðstjóri hjá lögregluembættinu á Akureyri, um tilkynningu sem barst til hans um fljúgandi furðuhlut rétt fyrir utan Akureyri. Í tilkynningunni, sem barst frá áhyggjufullum manni sem vill ekki láta nafn síns getið, kom fram að torkennilegur kringlóttur hlutur væri svífandi niður við Hamra rétt utan Akureyrar á föstudaginn síðastliðinn. Lögreglumennirnir, sem sendir voru á vettvangi, áttuðu sig þó fljótt á hvernig í pottinn væri búið.
„Ég er ekki geimvera,“ segir Ingvi Vaclav Alfreðsson tónlistarkennari, svifvængjaflugmaður og meintur fljúgandi furðuhlutur. „Ég var svolítið hátt uppi þannig að það er skiljanlegt að viðkomandi hafi ekki áttað sig á hvað þarna var í gangi.“
Og bætir við:
„En ég get alveg staðfest það að ég er jarðarbúi, þó ég tali með furðulegum hreim.“
Samkvæmt Gísla Steinari Jóhannessyni, sem sér um vefsíðuna paragliding.is, stafar almennt lítil hætta af svifvængjaflugmönnum og reyna þeir að lenda sem fjærst skepnum og fólki.
