
Sjóðheitur þingmaður
08:01 › 9. ágúst 2012Nokkur spenna er innan Samfylkingar vegna yfirvofandi formannsskipta. Ekki er í sjónmáli arftaki Jóhönnu Sigurðardóttur nema ef vera skyldi Sigríður Inga Ingadóttir sem upplýsti um áhuga sinn í DV.
Árni Páll Árnason þingmaður er stóðheitur fyrir stólnum en óljóst er um bakland hans. Víst er að Jóhanna er fráhverf því að hleypa Árna í formannsstöðuna. Því er jafnvel spáð að hún muni fremur halda áfram en láta Árna Páli eftir leiðtogasætið. En þetta mun skýrast á næstu misserum.
