„Fá sér einn kaldan“
18:45 › 2. ágúst 2012„Það væri ágætt að fá sér einn kaldan og horfa á handbolta,“ sagði fréttaþulurinn Ingólfur Bjarni Sigfússon þegar fréttatíma Sjónvarpsins lauk í kvöld. Venjan er sú að sjá starfsmenn fréttstofu Sjónvarpsins spjalli sín á milli þegar fréttatímanum er lokið og nafnalistinn rennur eftir skjánum.
Það virðist þó hafa gleymst að draga niður í hljóðnema Ingólfs Bjarna því hann heyrðist tala um hvað menn ætluðu sér að gera í kvöld. Ingólfur Bjarni er, líkt og góður meirihluti Íslendinga, eflaust spenntur fyrir leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem mætir því sænska á Ólympíuleikunum í kvöld.
