Grænn hagfræðingur

16:00 › 1. ágúst 2012

Ólafur Arnarson, hagfræðingur og bloggari, hefur undanfarið verið að fóta sig með vef sinn, timarim.is, þar sem hann á ágæta spretti. Höfuðstöðvar Tímaríms eru á Barónsstíg í sama húsnæði og Hægri grænir undir forystu Guðmundar Franklíns Jónssonar hafa komið sér fyrir. Velta menn fyrir sér hvort það kunni að vera fyrirboði þess að hagfræðingurinn hafi grænkað og sé að huga að brotthvarfi úr Sjálfstæðisflokknum.