Fátækramörk

16:00 › 31. júlí 2012

Fréttamaðurinn fyrrverandi og metsöluhöfundurinn Hallur Hallsson kemst illa af ef marka má álagningarseðla. Hallur, sem hefur skrifað og gefið út metsölubækur, er nú með launatekjur sem eru neðan við fátækramörk eða 77 þúsund krónur á mánuði.

Félagi hans, varaþingmaðurinn Óli Björn Kárason, er með örlítið meira eða 126 þúsund á mánuði. Þarna ber þó að líta til þess að félagarnir kunna að hafa tekjur af fjármagni. Þá er einnig hugsanlegt að skatturinn misreikni.