
Bjarni í faðm AMX
07:26 › 17. júní 2012Miklar líkur eru á því að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verði forsætisráðherra næstu ríkisstjórnar ef miðað er við fylgi í skoðanakönnunum. Bjarni hefur víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu þar sem hann hefur lent í miklum og eflaust lærdómsríkum ógöngum. Sú reynsla mun eflaust nýtast honum í stjórnarráðinu. Eitt helsta bakland formannsins í dag er að finna á vefnum amx.is sem mærir hann í hæstu hæðir. „Sterkur Bjarni“ er einkunn sem hann fékk í vikunni.
