
Gissur skíthræddur
07:45 › 14. júní 2012Gissur Sigurðsson fréttamaður er einn harðskeyttasti húmoristi ljósvakans. Á mánudagsmorgunn komst hann að því að Sigurjón Magnús Egilsson, útvarpsmaður og fyrrverandi fréttastjóri, hafði stokkið inn í útsendingu vegna veikinda Heimis Karlssonar. Lýst sá glaðbeitti Gissur því yfir að hann væri skíthræddur. Héldu þá einhverjir að hann væri að vísa til frægra Bakþanka í Fréttablaðinu um liðna helgi þar sem blaðamaðurinn Bergsteinn Sigurðsson hraunar yfir Sigurjón fyrir yfirgang gegn undirmönnum. Svo var þó ekki og var athugasemd Gissurar almenns eðlis.
