
Stuð í gestastofu
08:12 › 13. júní 2012Hjónin Ásta K. Ragnarsdóttir og Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður hafa um árabil rekið veisluþjónustu í Reykjavík. Undanfarið hafa þau verið við Tryggvagötu í sama húsi og DV. En nú er orðin breyting á því þau eru flutt í svokallaða gestastofu Björgólfs Guðmundssonar á Lækjartorgi. Stofan var byggð sem einskonar montstofa til þess að fólk gæti notið þess í góðum félagsskap að sjá tónlistarhúsið Hörpu rísa. Þar verður stuð á næstunni.
