
Strigakjafturinn
16:30 › 13. júní 2012Strigakjafturinn Björn Valur Gíslason á það til að hlaupa út undan sér og gefa yfirlýsingar sem eru handan velsæmis. Þetta gerðist þegar hann kallaði Ólaf Ragnar Grímsson forsetaræfil. Fleiri dæmi eru um slíkt. Hápunkti ósvífninnar náði Björn Valur þegar hann ýjaði að því á næturfundi að Jón Gunnarsson þingmaður væri ölvaður. Hann baðst síðan nauðugur afsökunar á ummælunum en var sniðgenginn af Sjálfstæðisflokknum.
