Thor 2 tekin upp hér á landi
14:31 › 3. ágúst 2012Kvikmyndasíðan Svarthöfði fullyrðir að myndin Thor: The Dark World verði tekin upp hér á landi. Myndin er framhald Marvel-myndarinnar Thor.
„Þegar vel er að gáð er Ísland í raun sjálfsagður tökustaður fyrir þessa stórmynd þar semThor-myndirnar fjalla um ævintýri þrumuguðs norrænna manna, Þórs, þegar hann stígur niður úr Ásgarði og lemur í stað jötna á allskyns ófétum með Mjölni,“ segir á síðu Svarthöfða. Leikstjóri myndarinnar, Alan Taylor, hefur verið viðloðandi Game of Thrones-þættina en hluti þeirra var tekinn upp hér á landi.
Ráðgert er að tökur á Thor: The Dark World hefjist í ágúst og stefnt er á frumsýningu í nóvember á næsta ári.
Thor yrði fjórða myndin sem er tekin upp hér á landi á þessu ári. Atriði úr myndinni Oblvion hafa þegar verið tekin hér auk þess sem tökur á Noah standa yfir. Þá hefur Ben Stiller verið hér á landi og unnið að undirbúningi fyrir tökur á myndinni Secret Life of Walter Mitty.
