Svona verða breytingarnar í miðborginni
20:00 › 29. júní 2012Nasa verður ekki rifið og raunar verða engar byggingar rifnar niður við uppbyggingu á Austurvelli og á Ingólfstorgi, samkvæmt tillögu um uppbyggingu í miðborginni sem varð hlutskörpust nú í dag í samkeppni sem haldin var á vegum Reykjavíkurborgar. Þó ekki standi til að rífa Nasa verður salnum og húsinu gjörbreytt.
Uppbyggingu svæðisins verður skipt í þrjá áfanga samkvæmt tillögunni. Í Vallarstræti verður fjölbreytt verslunar- og þjónustuhúsnæði þar sem markmiðið verður að styrkja þjónustu í hjarta miðborgarinnar, auðga mannlíf og skapa áhugverða upplifun fyrir vegfarendur.
Þá verður samkomusalur við Thorvaldsensstræti 2 endurbyggður sem skemmti- og ráðstefnusalur.
Landssímahúsið verður allt skipulagt sem hótelbygging með viðbættri þakhæð og nýbyggingu við Kirkjustræti, þar sem aðalinngangur verður í hótel. Mun innra skipulag hótels skapa tengsl við nærliggjandi almenningsrými, Víkurgarð og Austurvöll.
Við syðri hluta Ingólfstorgs verður svo menningarhús. ASK arkitektastofa var hlutskörpust í samkeppninni en það eru arkitektarnir Þorsteinn Helgason og Gunnar Örn Sigurðsson sem sáu um hönnunina.
Dómnefnd sagði um verðlaunatillöguna „að um sé að ræða metnaðarfulla tillögu sem tekur tillit til sögu Kvosarinnar en sýnir um leið áhugaverða þróunarmöguleika. Styrkur hennar felst meðal annars í skýrri og heildrænni sýn á viðkvæmu og mikilvægu miðborgarsvæði. Hún sýnir markvissa uppbyggingu án niðurrifs eða tilfærslu á gömlum húsum. Tillagan skiptir uppbyggingunni í þrjá áfanga þar sem hver áfangi hefur skýrt hlutverk. Í Vallarstræti verður fjölbreytt verslunar- og þjónustuhúsnæði. Það mun styrkja þjónustu í hjarta miðborgarinnar, auðga mannlíf og skapa áhugaverða upplifun fyrir vegfarendur. Hrynjandi og form nýbygginga fellur almennt vel að nálægri byggð. Samkomusalur við Thorvaldsensstræti 2 er endurbyggður sem skemmti- og ráðstefnusalur. Innangengt verður í veitingasal hótelsins.”
Hér má sjá kynningu ASK arkitekta um svæðið en í meðfylgjandi myndbandi má einnig fræðast nánar um breytingarnar.
Önnur verðlaun féllu í hlut Kanon arkitekta en höfundar þeirrar tillögu eru arkitektarnir
Anna Sóley Þorsteinsdóttir, Birkir Einarsson, Halldóra Bragadóttir, Helga Bragadóttir, Helgi B. Thóroddsen, Þorkell Magnússon og Þórður Steingrímsson.
Þriðju verðlaun hlaut Helgi Mar Hallgrímsson, arkitekt.
