
Lyftingar gegn sykursýki
16:36 › 8. ágúst 2012Það að lyfta lóðum getur komið í veg fyrir týpu tvö af sykursýki, ef marka má nýja rannsókn. Vísindamenn við Harvard háskóla og háskóla í Danmörku komust að því að reglulegar lyftingar geta minnkað líkurnar á sjúkdómnum um einn þriðja hluta. Rannsóknin, sem var framkvæmd á yfir 32 þúsund karlmönnum, birtist í tímaritinu Archives of Internal Medicine journal.
Það að regluleg líkamsrækt hjálpi til við að koma í veg fyrir sjúkdóminn er ekki nýtt af nálinni en hingað til hefur verið talið að best til þess væri að þjálfa þolið. Niðurstöðurnar eru því góðar fyrir þá sem kjósa frekar að svitna í lóðarsalnum heldur en á hlaupabrettinu.
Fylgst var með karlmönnunum á yfir 18 ára tímabili en á þeim tíma þróuðu tæplega 2300 þátttakendur með sér sjúkdóminn.
Í ljós kom að þeir sem lyftu lóðum í 30 mínútur á dag, fimm sinnum á viku, gátu minnkað líkurnar á sykursýki um 34%. Einnig kom í ljós að minni hreyfing, eins og klukkutími á viku, hefur góð áhrif og getur jafnvel minnkað líkur á sjúkdómnum um 12%. Samkvæmt niðurstöðunum er best að æfa þolið og lyfta lóðum til skiptis. „Margir eiga erfitt með að koma sér af stað á hlaupabretti og hafa ekki áhuga á að skrá sig í eróbik-tíma. Þessar nýju niðurstöður gefa til kynna að lóðalyftingar geta verið annar valmöguleiki fyrir þennan hóp,“ sagði talsmaður rannsóknarinnar, Anders Grontved. Ekki er enn vitað hvort sömu niðurstöður eigi við konur.
