
Saltið leynist víða
11:00 › 6. ágúst 2012Salt getur leynst í ótrúlegustu matvælum og þrátt fyrir að mannslíkaminn þurfi vissulega á salti að halda ber að gæta þar hófs, eins og í svo mörgu öðru. Fólk þarf um það bil 180–500 mg af salti á dag. Ofneysla salts getur meðal annars leitt til hærri blóðþrýstings auk annarra heilsuvandamála. Það er tiltölulega auðvelt að sleppa því að salta matinn en það reynist flóknara þegar saltið er í raun falið í matvælum. Tímaritið Women‘s Health tilgreinir nokkrar matvörur sem innihalda mikið salt og því ástæða til þess að hugsa sig um áður en þeirra er neytt. Þá er einnig ástæða til þess að læra að lesa innihaldslýsingar matvæla og skilja hvað er í matnum sem við setjum ofan í okkur.
Kaffidrykkir
Í sýrópi sem oft er notað í kaffidrykki leynist ekki bara sykur heldur talsvert magn af salti og er það gjarnan einnig að finna í sykurlausu sýrópi.
Tómatsósa
Fólk finnur oft fyrir þorsta þegar það snæðir pítsur. Mikið salt í ostinum og kjötáleggi á pítsunum veldur því að fólk finnur fyrir auknum þorsta en saltið ku einnig fela sig í sósunum. Oft er hægt að kaupa slíkar vörur þar sem framleiðendur hafa dregið úr saltmagni.
Morgunkorn
Í morgunkorni getur leynst talsvert af salti og er gott að lesa rækilega innihaldslýsingu þess morgunkorns sem fjölskyldan kaupir yfirleitt. Þá eru margir sem búa til hafragraut á morgnana og þeir ættu að varast að salta grautinn um of og nota til dæmis kanil eða ávexti til að bragðbæta hann.
