None

Hvar er besta golfið haustið 2012?

16:10 › 6. ágúst 2012

Nokkuð er um að forvitnir lesendur hafi samband og vilji vita hvert og hjá hverjum hagkvæmast sé að kaupa golfferð þetta haustið. Eins og Fararheill hefur fjallað um eru haustin gósentími ferðaskrifstofanna í golfferðunum og úrvalið allsæmilegt.


Fátt betra til að lengja sumarið og kannski upphafshöggin líka en drífa sig út í golf.


En það er kannski fullmikil einföldun að kanna hvar hagkvæmast sé að spila golf erlendis næstu mánuðina því við Íslendingar erum kröfuharðir og ekki dugir að senda fólk á einhverja lummuvelli jafnvel þó það dugi þeim er hæsta hafa forgjöf.


Ritstjórn hefur því tekið saman á einn og sama listann allar golfferðir í boði frá septemberbyrjun og fram til loka október og reynt að auðvelda fólki að bera saman. Erfitt er að dæma slíkar ferðir per se enda óskir fólks misjafnar og veskið misþykkt að auki.


En í öllu falli má hér sjá ferðirnar, lengd þeirra og kostnað miðað við tvo fullorðna í ódýrustu gistingu í boði.


Til að fá sem gleggsta mynd af verðinu er deilt í dagafjölda og þá sést einna best hvað hver einasti dagur kostar hjá hverjum og einum.


Sjá má á listanum að þó heildarverð geti almennt verið svipuð munar töluverðu þegar deilt er niður á daga hjá hverjum og einum. Einnig munar miklu á hvort í boði er aðeins morgunverður eða hvort hálft eða fullt fæði er í boði. Þá má ekki gleyma að ferðir til og frá flugvelli geta aldeilis kostað skildinginn.


Að síðustu er misjafnt hvort fararstjórar fylgja með eður ei. Almennt eru þeir þó óþarfir í golfferðum að mati Fararheill enda kylfingar almennt vel sigldir og vanir og Svíþjóð, England, Skotland og Spánn, einu staðirnir í boði, fara seint í bækur sem sérstaklega flóknir eða hættulegir áfangastaðir.


Oliva Nova golfvöllurinn er einn þeirra sem er í boði með íslenskri ferðaskrifstofu. Hann er eðalfínn og við ströndina sem er ekki verra ef betri helmingurinn vill sóla sig aðeins milli hringja




































































































































































































































































































































































































































































































































































































































































































































FerðaskrifstofaLandLengdFerðKostn. pr mann*AksturInnifaliðKostn.pr. dag
HeimsferðirSpánn29. sep – 7 dagarCosta Ballena179.900Hálft fæði / golf25.700
HeimsferðirSpánn6.okt – 10 dagarCosta Ballena219.900Hálft fæði / golf21.990
HeimsferðirSpánn16.okt – 10 dagarCosta Ballena219.900Hálft fæði / golf21.990
HeimsferðirSpánn29. sep – 7 dagarNovo St.Petri179.900Hálft fæði / golf25.700
HeimsferðirSpánn6.okt – 10 dagarNovo St.Petri219.900Hálft fæði / golf25.700
HeimsferðirSpánn16.okt – 10 dagarNovo St.Petri219.900Hálft fæði / golf21.990
HeimsferðirSpánn29.sep – 7 dagarArcos Gardens229.900Hálft fæði / golf32.840
HeimsferðirSpánn6.okt – 10 dagarArcos Gardens279.900Hálft fæði / golf27.990
HeimsferðirSpánn16.okt – 10 dagarArcos Gardens279.900Hálft fæði / golf27.990
HeimsferðirSpánn29.sep – 7 dagarMontenmedio189.900Hálft fæði / golf27.120
HeimsferðirSpánn6.okt – 10 dagarMontenmedio229.900Hálft fæði / golf22.990
HeimsferðirSpánn16.okt – 10 dagarMontenmedio229.900Hálft fæði / golf22.990
Vita ferðirSpánn8.okt – 11 dagarIslantilla246.900Hálft fæði / golf22.455
Vita ferðirSpánn19.okt – 11 dagarIslantilla246.900Hálft fæði / golf22.455
Vita ferðirSpánn26.sep – 7 dagarValle del Este179.900Fullt fæði / golf25.700
Vita ferðirSpánn3.okt – 7 dagarValle del Este179.900Fullt fæði / golf25.700
Vita ferðirSpánn10.okt – 7 dagarValle del Este179.900Fullt fæði / golf25.700
Vita ferðirSpánn17.okt – 7 dagarValle del Este179.900Fullt fæði / golf25.700
Vita ferðirSpánn8.okt – 11 dagarMatalascanas214.900Hálft fæði / golf19.536
Vita ferðirSpánn19.okt – 11 dagarMatalascanas214.900Hálft fæði / golf19.536
Vita ferðirSpánn8.okt – 11 dagarEl Rompido249.900Fullt fæði / golf22.720
Vita ferðirSpánn19.okt – 11 dagarEl Rompido249.900Fullt fæði / golf22.720
Vita ferðirSpánn10.okt – 7 dagarMar Menor219.800Hálft fæði / golf31.400
Vita ferðirSpánn17.okt – 7 dagarMar Menor219.800Hálft fæði / golf31.400
Úrval ÚtsýnSpánn29.sep – 7 dagarHusa Alicante189.900Hálft fæði / golf27.130
Úrval ÚtsýnSpánn6.okt – 10 dagarHusa Alicante249.900Hálft fæði / golf24.900
Úrval ÚtsýnSpánn16.okt – 11 dagarHusa Alicante249.900Hálft fæði / golf22.720
Úrval ÚtsýnSpánn29.sep – 3 dagar*Plantio Golf139.900Hálft fæði / golf46.630
Úrval ÚtsýnSpánn29.sep – 4 dagar*Plantio Golf154.900Hálft fæði / golf38.730
Úrval ÚtsýnSpánn25.sep – 7 nætur*Plantio Golf204.900Fullt fæði / golf29.270
Úrval ÚtsýnSpánn29.sep – 10 nætur*Plantio Golf254.900Hálft fæði / golf25.490
Úrval ÚtsýnSpánn29.sep – 11 nætur*Plantio Golf254.900Hálft fæði / golf23.170
Úrval ÚtsýnSpánn29.sep – 14 nætur*Plantio Golf254.900Hálft fæði / golf18.200
Úrval ÚtsýnSpánn16.okt – 7 næturVillaitana179.900Hálft fæði / golf25.700
Úrval ÚtsýnSpánn13.okt – 10 næturVillaitana209.900Hálft fæði / golf20.990
Express ferðirEngland21.sep – 3 næturMannings Heath143.900NeiMorgunv. / golf48.000
Express ferðirEngland4.okt – 3 næturMannings Heath143.900NeiMorgunv. / golf48.000
Express ferðirEngland13.sep – 3 næturGolf Lingfield105.900NeiHálft fæði / golf35.300
Express ferðirEngland11.okt – 3 næturGolf Lingfield105.900NeiHálft fæði / golf35.300
Express ferðirSvíþjóð7. sep – 3 nætur*Mismunandi85.900NeiMorgunv. / golf28.630
Express ferðirSvíþjóð7.sep – 3 nætur*Mismunandi98.500NeiMorgunv. / golf32.800
Express ferðirSvíþjóð7.sep – 3 nætur*Mismunandi110.900NeiMorgunv. / golf37.000
Express ferðirSpánn1.sep – 7 nætur*Mismunandi329.800**NeiMorgunv. / golf47.100
Express ferðirSpánn1.sep – 7 nætur*Mismunandi311.400**NeiMorgunv. / golf44.485
GB ferðirEngland5.okt – 3 nætur*Donnington Grove120.00NeiMorgunv. / golf40.000
GB ferðirEngland7.sep – 3 nætur*Bowood140.000NeiMorgunv. / golf46.600
GB ferðirEngland28.sep – 3 nætur*Foxhills125.000NeiMorgunv. / golf41.600
GB ferðirEngland7.sep – 3 nætur*Hanbury155.000NeiMorgunv. / golf51.600
GB ferðirEngland7.sep – 3 nætur*Donnington Valley130.000NeiMorgunv. / golf43.300
GB ferðirEngland7.sep – 3 nætur*Formby Hall99.000NeiMorgunv. / golf33.000
GB ferðirEngland7.sep – 3 nætur*Worsley Park120.000NeiMorgunv. / golf40.000
GB ferðirSkotland20.sep – 3 nætur*The Marine145.000NeiMorgunv. / golf48.300
GB ferðirSkotland6.sep – 3 nætur*Marriott Dalmahoy130.000NeiHálft fæði / golf43.300
Wow ferðirSpánn20.sep – 4 nætur*Bonalba112.800Hálft fæði / golf28.200
Wow ferðirSpánn4.okt – 7 næturBonalba162.700Hálft fæði / golf23.200
Wow ferðirSpánn27.sep – 7 næturLa Sella172.900Hálft fæði / golf24.700
Wow ferðirSpánn27.sep – 11 næturLa Sella229.900Hálft fæði / golf20.900
Wow ferðirSpánn27.sep – 7 nætur*La Manga Felipe182.900Morgunv. / golf26.100
Wow ferðirSpánn11.okt – 7 næturOliva Nova152.700Hálft fæði / golf21.800
* Fleiri dagsetningar í boði en sama verð
** Verð miðast við fjóra í íbúð – Fararheill deilir með 2
*** GB ferðir auglýsa margar ferðir sem golfferðir en ekkert golf er innifalið. Það stemmir ekki í bókum Fararheill
**** Uppseldar ferðir þann 6. ágúst eru ekki með í reikningnum
***** Verð námundað að næsta hundraði


Lesa á Fararheill.is