
Tannkremið ekki hættulegt
09:00 › 18. ágúst 2012Það kannast eflaust margir við að hafa heyrt það sem börn að það mætti ekki kyngja tannkremi því það innihéldi svo mikið af hættulegum efnum sem gætu verið slæm fyrir líkamann.
Það má segja að það sé hálfgerð mýta því þú þyrftir að öllum líkindum að borða innhald heillar tannkremstúbu til að finna fyrir einhverjum óþægindum í maganum. Tannlæknar ráðleggja meira að segja fólki yfirleitt að skola ekki munninn með vatni eftir tannburstun því það dregur úr áhrifum flúorsins.
Þá þarf ekki að bleyta tannkremið á burstanum áður en þú byrjar að bursta.
