
Karamelluglassúr
12:00 › 7. júlí 2012Karamelluglassúr er ótrúlega vinsælt hjá yngri kynslóðinni og má eiginlega segja að það hafi tekið við af súkkulaðiglassúrinu því snúðar og kleinuhringir með karamelluglassúr eru alveg rosalega vinsælir hjá börnunum.
Karamelluglassúr
1/2 bolli púðursykur
1/4 bolli brætt smjör
2 msk. mjólk
1 tsk. vanilludropar
Smá salt
450 gr flórsykur
Öll hráefnin eru sett saman í skál og þeytt vel saman.
