Burstaðu rétt

11:06 › 9. júní 2012

Tannlæknar mæla með því að tennurnar séu burstaðar tvisvar á dag en það er þó ekki sama hvenær það er gert. Ef þú burstar tennurnar innan við hálftíma eftir þú hefur drekkur morgunkaffið þitt ertu til dæmis að gera tönnunum meira vont en gott. Það sama á við um gos- og ávaxtadrykki.

Ef þú burstar tennurnar um tuttugu mínútum eftir að hafa drukkið slíka drykki eru allar líkur á því að þú þrýstir sýrunni ennþá dýpra inn í glerunginn á tönnunum en ella. Sé slíkt gert ítrekað aukast líkur á tannskemmdum verulega. Þá gera sumir einnig þau mistök að bursta tennurnar of oft á dag, en það er heldur ekki gott fyrir tennurnar.