Gamalt fólk lyktar betur en ungt fólk

16:11 › 1. júní 2012

Það er oft talað um að sérstök lykt fylgi gömlu fólki og nú hefur verið gerð rannsókn á þessu sérstaka fyrirbæri. Það er Svíinn Johan Lundstrom sem gerði þessa rannsókn og tóku 41 sjálfboðaliði þátt í könnunni og voru þeir á aldrinum 20 til 95 ára.

Könnunin fór þannig fram að fólkið fékk sérútbúna stuttermaboli sem þau sváfu í, í 5 nætur. Þeir voru með sérstökum púðum í handakrikunum sem drógu í sig lykt og á daginn var bolurinn geymdur í frysti svo niðurstöður rannsóknarinnar yrðu sem áreiðanlegastar. Allir sjálfboðaliðar fóru í sturtu fyrir svefninn og þvoðu sér með lyktarlausri sápu og þvoðu sængurföt sín með lyktarlausu þvottaefni.

Eftir 5 nætur í bolnum voru púðarnir í handakrikanum fjarlægðir og settir í krukkur og þá voru fengnir aðrir 41 sjálfboðaliði til að opna krukkurnar og dæma lyktina.

Niðurstöður þessarar rannsóknar sýndu að lykt af 75-95 ára gömlu fólki var mun betri en af ungu - og miðaldra fólki og sterkasta og versta lyktin var af 45-55 ára karlmönnum. Það kom líka í ljós að venjuleg líkamslykt kvenna er engu betri en líkamslykt karla.