Meðlimirnir þrír úr Pussy Riot.

Krefst þriggja ára fangelsisdóms yfir Pussy Riot

7. ágúst 2012 › 20:54

Ríkissaksóknari í Rússlandi krefst þriggja ára fangelsisdóms yfir meðlimum rússnesku pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot. Saksóknarinn sakar þær um að hafa misnotað Guð þegar þær hlupu upp að altarinu í miðri messu í rétttrúnaðarkirkju í Moskvu og öskruðu „María mey, losaðu okkur við Pútín!“ Mótmælin, sem þær kölluðu „pönkbæn“, áttu sér stað í mars síðastliðnum og hafa þær mátt dúsa í fangelsi síðan. Athæfið var tekið upp á myndband og var sett á netið og hljómar tónlist hljómsveitarinnar undir á meðan þær gerðu grín að nýkjörnum forseta Rússlands, Vladimir Putin.

Saksóknarinn fór fram á þessa refsingu í dag en verjandi meðlima Pussy Riot segir kröfuna í engu samræmi við hið ætlaða brot og færa skömm yfir réttarkerfið.

Saksóknarinn fór þó ekki fram á hámarksrefsingu sem er sjö ára fangelsisvist en Pútín hefur kallað eftir því að konunum verði ekki refsað harkalega.

Hinar handteknu eru allar á þrítugsaldri. Tvær þeirra eru mæður ungra barna. Málið hefur vakið mikla reiði í Rússlandi og einkum í garð rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.