
Rúmlega áttræð nunna braust inn á framleiðslusvæði fyrir kjarnavopn
3. ágúst 2012 › 13:39Þrír aðgerðasinnar á aldursbilinu 57 til 82 ára brutust inn á svæði þar sem mikið magn af auðguðu úraníumi er hýst í Bandaríkjunum. Elsti aðgerðarsinninn er nunna, en hópurinn komst í gegnum fjórar mismunandi girðingar og gengu aðgerðasinnarnir í um tvo tíma til þess að komast að geymslusvæðinu.
Þar máluðu þeir slagorð á veggi og slettu blóði á þá ásamt því að strengja upp lögregluborða. Var verið að mótmæla framleiðslu kjarnavopna. En það hefur fyrst og fremst vakið athygli hvernig þrír ótýndir aðgerðarsinnar hafi komist að ytri veggjum vöruhúss þar sem mikið magn af auðguðu úrani er geymt.
„Það er ótrúlegt að þetta skuli geta gerst,“ segir Peter Stockton, sem farið hefur fyrir rannsóknarnefnd bandaríska þingsins í orkumálum. „Þetta er gífurlega alvarlegt. Ef þetta hefðu verið hryðjuverkamenn þá hefðu þeir getað sprengt upp hurðina og komist inn.“
Arfaslöpp öryggisgæsla
Öryggisverðir urðu varir við ferðir hópsins þegar hreyfiskynjarar fóru í gang og var þetta við ystu girðinguna. Það tók öryggissveitir samt yfir tvo tíma að komast að fólkinu.
Athygli vekur að dótturfélag einkafyrirtækisins G4S sér um öryggisgæslu á svæðinu og hefur G4S komist í heimspressuna fyrir arfaslaka frammistöðu í öryggisgæslu á Ólympíuleikunum í ár.
Öryggisverðir á Ólympíuleikunum voru sums staðar langtum færri en G4S hafði lofað. Þá munu einkennilegar þjálfunaraðferðir fyrir nýliða hjá fyrirtækinu hafa vakið athygli. Talsmenn fyrirtækisins hafa að sögn Reuters ekki viljað tjá sig um atburðinn, sem varð á síðastliðinn miðvikudag.
Eru í gæsluvarðhaldi
Aðgerðasinnarnir hafa verið handteknir en þeir munu fara fyrir dómara í dag í Knoxville í Tennessee-fylki í Bandaríkjunum, þar sem saksóknarar munu þurfa að sýna fram á að af þeim stafi hætta, eða að þeir séu líklegir til þess að flýja land. Að öðrum kosti verður þeim sleppt en líklegt er að þeir verði ákærðir fyrir athæfi sitt.
Ralph Hutschinson talaði fyrir hönd hópsins og sagði ætlunina hafa verið að mótmæla framleiðslu kjarnavopna. „Þetta var ekki gert til þess að sýna fram á hversu auðveldlega það væri hægt að brjótast þarna inn, heldur til þess að mótmæla framleiðslu á kjarnavonum, sem er á skjön við allt sem er siðlegt og gott,“ segir hann við Reuters.
