
Myrkraverk í Mexíkó
3. ágúst 2012 › 23:30Þær voru aðeins fjórtán ára gamlar. Tvær frænkur frá litlum bæ í hjarta Mexíkó sem í janúar 2010 höfðu farið saman í skemmtiferð í farandtívolí. En sú saklausa ferð breyttist á einu augabragði í algjöra martröð. Stúlkurnar urðu fórnarlömb mansals, og voru í marga mánuði þvingaðar með ofbeldi, í vændi og þeim gefin fíkniefni. Hrollvekjandi frásögn þeirra í fréttaskýringaröð CNN, Freedom Project, hefur vakið mikla athygli og lætur engan ósnortinn.
Þjáningar þeirra voru þó ekki til einskis því mál þeirra varð til þess að yfirvöld fengu mikilvæga innsýn í undirheima mansals í Mexíkó. Þar varð vakning og þau skáru upp herör gegn því.
Rænt við strætóskýli
Stúlkurnar, sem nefndar eru Maria og Lupe í umfjöllun CNN til að vernda þær og fjölskyldur þeirra, voru þann 27. janúar 2010 staddar einar í strætóskýli snemma kvölds á heimleið eftir tívolíferðina. Þær segja að vöruflutningabíll hafi staðnæmst við skýlið.
Tveir grímuklæddir menn stukku út og án þess að hika námu þeir frænkurnar á brott. „Ég fann að eitthvað var sett yfir nefið á mér og það síðasta sem ég man eftir var að kalla á hjálp,“ segir Lupe þegar hún rifjar hið örlagaríka kvöld upp. Þeim var byrlað ólyfjan og þær misstu allt tímaskyn. Þær rönkuðu við sér í dimmu herbergi þar sem þær voru geymdar að eigin sögn í nokkra daga. Þetta var því miður aðeins upphaf rauna þeirra.
Barin og nauðgað
Eftir nokkra daga segir Maria að kona hafi birst í herbergi þeirra. Hún tjáði stúlkunum að héðan í frá ynnu þær fyrir hana. Þær höfðu ekki hugmynd um hvað hún meinti. Lupe var fjarlægð úr herberginu og Maria skilin ein eftir. Karlmaður kom inn í herbergið og að sögn Mariu barði hann hana miskunnarlaust áður en hann nauðgaði henni. Maðurinn og konan hótuðu henni lífláti ef hún sýndi ekki samstarfsvilja.
Þetta kvöld var Maria þvinguð til að eiga mök við 23 karlmenn.
„Þegar þeir fóru lá ég eftir á gólfinu. Mér blæddi og mig verkjaði um allan líkamann. Konan sagði mér að hunskast á lappir. Þetta hafi ekki verið svo slæmt.“
Þetta var upphafið á margra mánaða þjáningum stúlknanna. Þær voru seldar svokölluðum melludólg sem þvingaði þær til að stunda vændi með ofbeldi og vímuefnum. Ef þær voru ekki „vingjarnlegar“ við viðskiptavini dólgsins, voru þær lamdar.
Áhyggjufull fjölskylda
Á sama tíma, í heimabæ þeirra, var þeirra sárt saknað af fjölskyldunni. Ættingjar og vinir lögðust í umfangsmikla leit að þeim þar sem talið var að þær hefðu týnst í bænum. Síðar var leitað í næstu bæjum og leitarsvæðið stækkað.
Faðir Lupe, sem kallaður er Francisco, rifjar upp í samtali við CNN að hann hafi verið viti sínu fjær af örvæntingu. Hann skipulagði leitina og skipti fjölskyldunni upp í leitarhópa. Hengdar voru upp auglýsingar um allar trissur. Á endanum ákvað Francisco, í félagi við bróður sinn, að leita á hinum ýmsu börum meðfram þjóðvegum. Þeir fóru á fjölmarga bari í Morelos-héraði í námunda við Mexíkóborg. Þeim bauð við því sem þeir sáu. Ótal stúlkur undir lögaldri sem hefðu átt að vera í skólanum voru þess í stað látnar vinna sem vændiskonur.
Maria var látin vinna á einu af fjölmörgum slíkra öldurhúsa, á átján tíma vöktum að því er hún rifjar upp. „Mér fannst ég vera svo skítug.“
Hún var fóðruð á áfengi og fíkniefnum og var hún sannfærð um að hún ætti skammt eftir ólifað. Henni var haldið fanginni í húsi og rifjar upp hvað henni brá þegar hún sá að komið var með stúlku þangað sem var mun yngri en hún sjálf. Hún spurði stúlkuna hversu gömul hún væri. Svarið: átta ára.
Gjörspilltur bjargvættur
Maria segir að hún hafi einu sinni náð að strjúka eftir nokkrar tilraunir. Hún slapp, hljóp út á götu og fann þar lögreglumann á næsta götuhorni. Hún taldi að hún væri hólpin. En henni rann kalt vatn milli skinns og hörunds þegar hún áttaði sig á því að lögreglumaðurinn var á launaskrá melludólgsins. Og hann skilaði Mariu aftur til hans í húsið þar sem hún fékk barsmíðar að launum fyrir strokutilraunina.
Sá ljósið
Þremur mánuðum eftir að Mariu og Lupe var rænt hafði sú fyrrnefnda að sögn glatað allri von. Þar til hún sá ljósið – bókstaflega. Hún segist aldrei gleyma þeim degi, 14. apríl. Þá vaknaði hún við sólargeisla sem brutust inn í herbergið undan fataskáp í dimmu herberginu. Maria náði að ýta skápnum frá og fyrir aftan hann fann hún ólæsta hurð. Hún hljóp eins hratt og hún gat, í nokkrar klukkustundir að því er henni fannst. Þar til hún rakst á ungan mann sem virtist virkilega hafa áhyggjur af henni. Hann færði hana að hópi ungra kristinna karlmanna sem gáfu henni að borða, hýstu hana um nóttina og keyptu fyrir hana strætómiða heim. Eftir að hafa heimt Mariu úr helju fór fjölskylda hennar rakleiðis til lögreglunnar sem gerði áhlaup á vændishúsið. Tíu manns voru handteknir, sex stúlkum undir lögaldri var bjargað, þar á meðal Lupe. En því miður var hin átta ára gamla stúlka ekki ein þeirra.
Mikilvæg innsýn
Victor Carranca, ríkissaksóknari í Puebla-ríki, segir að mál Mariu og Lupe hafi veitt yfirvöldum mikilvæga innsýn í undirheima mansals og það umfangsmikla net glæpamanna sem ræna ungum stúlkum og þvinga þær í vændi.
„Ríkissaksóknarinn einbeitti sér að því að þrengja að fjármögnunarleiðum þessara glæpahópa. Á endanum lokuðum við 600 stöðum,“ segir Carranca. „Margir þeirra voru ekki aðeins ólögleg vændishús heldur einnig fundarstaðir skipulagðra glæpahópa.
Frænkurnar Maria og Lupe fá nú sálfræði-, lögfræði- og fjárhagsaðstoð hjá samtökunum Camino a Casa sem sérhæfa sig í að aðstoða fórnarlömb mansals. Samtökin voru stofnuð árið 2005 af stjórnmálakonunni Rosi Orozco sem um árabil hefur barist gegn mansali. Í júní síðastliðnum varð frumvarp hennar um mansalsmál að lögum í Mexíkó en í þeim er meðal annars kveðið á um að þeir sem gerist sekir um mansal eigi yfir höfði sér allt að 40 ára fangelsi. Hún áætlar að tugþúsundir ófullveðja stúlkna séu fórnarlömb kynferðisglæpa í Mexíkó á ári hverju. Baráttan er því rétt að byrja.
