
Murdoch hættur í stjórn News International
22. júlí 2012 › 09:54Rupert Murdoch, stofnandi fjölmiðlarisans News Corporation, hefur sagt sig úr stjórnum þriggja félaga sem standa á bak við dagblöðin The Sun, Times og Sunday Times í Bretlandi. Murdoch, sem er 81 ára, vék úr stjórnum NI Group, sem áður hét News International, NewsCorp Investments og Times Newspaper Holdings.
Talskona fyrirtækisins segir að breytingarnar séu „almenn tiltekt innan fyrirtæksins“ áður en samsteypunni verður skipt í tvennt. Hins vegar er freistandi að tengja afsögn Murdochs við símhlerunarhneykslið í kringum News International, en orðspor Murdochs hefur beðið hnekki í Bretlandi og víðar eftir hneykslið.
Það á að skilja útgáfustarfsemi fyrirtækisins frá kvikmynda- og sjónvarpshlutanum, sem er nú veigameiri í rekstri fyrirtækisins. Í öðru fyrirtækinu yrðu m.a. Fox-sjónvarpsstöðvarnar og kvikmyndaverið 20th Century Fox. Í hinu félaginu yrðu m.a. dagblöðin Wall Street Journal, The Times, The Sun, The Australian og New York Post, auk bókaútgáfunnar HarperCollins.
Búist er við að Murdoch verði stjórnarformaður í báðum fyrirtækjum, en einungis forstjóri kvikmynda- og sjónvarpsmegin.
