
Interpol varar við fölsuðum miðum á Ólympíuleikana
21. júlí 2012 › 17:32Interpol í Lundúnum hefur gefið út tilkynningu þar sem fólk er varað við að versla miða á Ólympíuleikana 2012 og Ólympíuleika fatlaðra 2012 af félaginu Euroteam. Í tilkynningunni segir að félagið haldi úti tíu vefsíður sem selja falsaða miða á atburðina.
Neðangreindar vefsíður eru haldnar úti af Euroteam-félaginu og forðast skal viðskipti á þeim:
www.euroteam.net
www.tixnet.com
www.olympicticket.info
www.euroteam.info
www.euroteamtickets.com
www.2012tickets.org
www.londonsummergames.net
www.londonsummergames.org
www.euroteam.travel
www.worldticketservice.net
Ólíklegt er að þeir sem hafa nú þegar keypt miða í gegnum þessar vefsíður fái miðana afhenta þar sem félagið hefur ekki getað sannreynt uppruna þeirra. Þeim sem hyggjast kaupa miða á Ólympíuleikana er bent á að versla við síðuna sem Interpol gefur upp, www.tickets.london2012.com eða þá að hafa samband við Íþrótta- og Ólympíusambandið.
Talið er að þau lönd sem svikamyllan nái til eru Bandaríkin, Bretland, Austurríki, Ástralía, Belgía, Búlgaría, Kanada, Kína, Kýpur, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Ísland, Írland, Ítalía, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.
