
Drepinn af tígrisdýrum í Kaupmannahöfn
11. júlí 2012 › 09:50„Hann var drepinn af tígrisdýrunum,“ segir Henrik Orye, varðstjóri hjá dönsku lögreglunni við Ekstrabladet. „Þau stukku á hann og hann er látinn.“ Um var að ræða nokkur tígrisdýr.
Samkvæmt dönsku lögreglunni mun hann vera ættaður frá Mið-Austurlöndum. Hann braust inn í dýragarðinn um klukkan tíu eða ellefu í gærkvöldi. Eftir að hafa komist inn í dýragarðinn þurfti maðurinn þurfti meðal annars að synda rúmlega þriggja metra djúpan vatnsskurð til þess að komast að tígrisdýrunum sjálfum.
Lögreglan kveðst ekki vita hvað maðurinn hafi aðhafst í garðinum alla nótt. Maðurinn verður krufinn og blóð hans verður rannsakað, til þess að komast að því hvort að hann hafi verið undir áhrifum vímuefna eða áfengis. Þá reynir lögregla að skera út um hvort að um sjálfsmorð hafi verið að ræða.
Að sögn lögreglu munu dýrin hafa étið hluta af manninum og föt hans voru í tætlum. Hann lést nánast samstundis þegar dýrin veittust að honum en tígrisdýr ráðast vanalega að fórnarlömbum frá hliðum eða aftan frá og reyna að drepa skjótt og örugglega.
Það voru starfsmenn dýragarðsins sem fundu manninn og haft var samband við lögreglu um hálf átta leytið í morgun á staðartíma.
