
Var rétt af þeim að ganga út?
3. júní 2012 › 22:13Um fimm hundruð manns hafa svarað spurningu í spurningakönnun DV um hvort rétt hafi verið af forsetaframbjóðendunum Andreu Ólafsdóttur, Ara Trausta Guðmundssyni og Hannesi Bjarnasyni, að ganga út úr kappræðum Stöðvar 2 í Hörpu.
Frambjóðendurnir gengu út til að mótmæla því að frambjóðendur myndu vera spurðir tveir og tveir saman, í stað þess að allir frambjóðendurnir sex yrðu í kappræðum saman. Þau höfðu farið fram á það að lágmarki, að hlutkesti yrði kastað um hverjir yrðu tveir saman. Stöð 2 lét hins vegar stafrófsröð ráða, sem gerði að verkum að Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir áttu að mætast tvö síðust, á eftir tveimur öðrum pörum.
Athugið að fyrirvara verður að setja á áreiðanleika könnunarinnar, upp að því marki að könnunin er lögð fram í samhengi fréttaflutnings af atburðum málsins.
Hér má taka þátt í könnuninni:
