
Stjórn Geirs í góðum málum eftir hrun
3. júní 2012 › 13:46Geir Hilmar Haarde er síðasti ráðherrann úr ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins þegar hrunið varð árið 2008 sem fær vinnu. Sjö af tólf ráðherrum úr ríkisstjórninni sitja enn á þingi, þar af tveir í núverandi ríkisstjórn.
Tilkynnt var um það í síðustu viku að Geir Hilmar hafi gengið til liðs við Opus lögmannsstofu, sem er í eigu stjúpsonar hans. Samkvæmt tilkynningu frá lögmannsstofunni mun Geir starfa sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum og á heimasíðu stofunnar stendur að hann hafi umsjón með alþjóðasviði hennar. Geir er sjálfur ekki menntaður lögfræðingur en hann er með MA-gráðu í bæði hagfræði og alþjóðastjórnmálum. Þetta er fyrsta starf hans eftir að hann lauk háskólanámi sem ekki er á vegum hins opinbera.
„Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ sagði Geir H. Haarde í samtali við Morgunblaðið stuttu eftir að tilkynnt var um nýjan starfsvettvang.
