Frá fundi Stjórnarskrárfélagsins með forsetaframbjóðendum.

Gengu út: Andreu, Ara og Hannesi misboðið

3. júní 2012 › 19:08

Þau Ari trausti Guðmundsson, Hannes Bjarnason og Andrea Ólafsdóttir gengu á dyr í upphafi kappræða Stöðvar 2. Um það leiti sem Þorbjörn Þórðarson fréttamaður ætlaði að spyrja Andreu fyrstu spurningu kvöldsins lásu þau Andrea og Ari trausti sameiginlega yfirlýsingu sína og Hannesar og tilkynntu að þau ætluðu sér ekki taka þátt í fundinum vegna óánægju með hvernig staðið var að undirbúning fundarins og uppröðun á frambjóðendum.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, Þóra Arnórsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir ákváðu að taka taka þátt í fundinum. Hægt er að horfa á kappræðurnar í beinni útsendingu á Vísi og í opinni dagskrá á Stöð 2.

Það var í kjölfar fyrstu spurningar fundarstjóra Stöðvar 2 sem Andrea tilkynnti ákvörðun um útgöngu.

Þorbjörn Þórðarson: „Ég ætla að ríða á vaðið með þér Andrea: Hvers vegna langar þig á Bessastaði?“

Andrea Ólafsdóttir: „Já, við ætlum nú eiginlega að ríða á vaðið með því að lesa sameiginlega yfirlýsingu frá okkur, þannig að við fáum kannski að gera það fyrst.“

Ari Trausti Guðmundsson: „Ég byrja. Ljóst er að sá kappræðufundur sem okkur var boðið til er í raun fundur með spurningum og svörum til tveggja frambjóðenda í einu og þar með fjarri öllum umræðum frambjóðendanna sex. Af þessu fréttum við í dag, að Þóra og Ólafur Ragnar standa saman í lokin, eins og upphaflega var áætlað. Sem lágmarkskröfu höfum við sett fram þá eindregnu beiðni, gerðum það í dag með fréttatilkynningu, að dregið yrði um röð frambjóðenda í pör, bæði hvað varðar tímaröðina, og einstaklinga sem standa saman.“

Andrea Ólafsdóttir: „Þessu hafnar fjölmiðillinn af tæknilegum ástæðum, innan við klukkustund fyrir útsendingu. Að þessu fengnu ákváðum við, ég, Ari Trausti og Hannes, að yfirgefa fundinn, og skora á Þóru og Ólaf Ragnar að gera slíkt hið sama. Okkur er misboðið. Lýðræðið er jafnrétti, og jafnrétti eru mannréttindi. Við viljum láta koma vel fram við okkur. Af öllum fjölmiðlum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.