Einu undantekningarnar sem gjaldeyriseftirlitið lítur til er þegar gjaldeyrir er afhentur Íslendingum sem búsettir eru erlendis.

Þurfa að skila dagpeningunum

27. júní 2012 › 09:40

Sveitarstjórnarmenn sem fengu dagpeninga greidda í evrum í boðsferð Evrópusambandsins til Brussel þurfa að standa skil á peningunum. Samkvæmt lögum um gjaldeyrishöft er skýrt kveðið á um að skila eigi öllum erlendum gjaldeyri til fjármálastofnunar minnst þremur vikum eftir að gjaldeyririnn kemst í hendur íslenskra einstaklinga. Boðsferðin var farin 18. til 20. júní og er gert ráð fyrir að farið verði í aðra svipaða boðsferð í haust.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.