
Jón Ásgeir færði kyrrsettan Hummer til 365
27. júní 2012 › 08:07Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir færði Hummer-bifreið sína yfir á eignarhaldsfélag í eigu 365 miðla, fjölmiðlasamsteypu í eigu eiginkonu hans, Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur, í ágúst árið 2011. Á bifreiðinni hvílir tæplega 200 milljóna króna kyrrsetningargerð frá Glitni banka.
Bifreiðin er í eigu sama félags og á glænýja, svarta Range Rover Evoque-bifreið sem DV greindi frá í síðustu viku að Jón Ásgeir hefði afnot af. Félagið sem um ræðir, Hverfiseignir ehf, hefur verið rekið með tapi undanfarin ár en það á þessa tvo bíla auk fasteigna.
Hummer-bifreiðin hefur aðeins verið í eigu Jóns Ásgeirs og Hverfiseigna síðan hún var fyrst skráð hér á landi árið 2003.
Ítarleg umfjöllun um málið í DV í dag
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
