
Ágústa Sif tekst á við fæðingarþunglyndi
27. júní 2012 › 07:00Ágústa Sif Aðalsteinsdóttir eignaðist sitt fyrsta barn fyrir þremur mánuðum. Hún naut meðgöngunnar og beið spennt ásamt manni sínum eftir komu barnsins í heiminn. Eftir að barnið fæddist byrjaði Ágústa að finna fyrir mikilli vanlíðan sem ágerðist stöðugt. Það var ekki fyrr en hún var komin á fremsta hlunn með að gera barni sínu mein að hún áttaði sig á að eitthvað væri að og bar sig eftir hjálp. Í dag er hún í meðferð við fæðingarþunglyndi og hlakkar til að fara njóta móðurhlutverksins. Þessi hugrakka stúlka stígur nú fram og segir sögu sína um baráttuna við fæðingarþunglyndi í von um að opna umræðuna og að konur sem upplifa fæðingarþunglyndi sjái að það er hjálp að fá. Enginn eigi að þurfa að þjást í hljóði.
„Ég fékk bara nóg“
Það var ekki fyrr en Ágústa var komin með hugsanir um að skaða barnið sitt að hún leitaði sér hjálpar. „Ég var orðin svo pirruð og ég var orðin svo stressuð og kvíðin. Mér leið bara svo illa og hann var að gráta og hann vildi ekki stoppa og ég bara, ég fékk nóg. Ég var brjáluð. Mig langaði að öskra og mig langaði að slá hann. En ég lét mömmu hafa hann, fór út og andaði djúpt. Tók mér smá tíma til að vera með sjálfri mér og ná mér niður. Eftir það hringdi ég í hjúkkuna mína og sagði henni að það væri eitthvað mikið að. “
Í miðvikudagsblaði DV er að finna einlæga frásögn Ágústu af baráttu hennar við fæðingarþunglyndi sem og ráðleggingar hjúkrunarfræðings sem gefur nýbökuðum mæðrum góð ráð hvernig bera skuli sig að ef þær telja sig glíma við fæðingarþunglyndi. Rjúfum þögnina
