
38 milljarða björgun
26. júní 2012 › 22:00Það var í blíðskaparveðri þann þrettánda janúar á þessu ári sem skemmtiferðaskipið Costa Concordia steytti á skeri við strendur Ítalíu. Gáleysi skipstjórans hafði þær hörmulega afleiðingar að skipið lagðist á hliðina og 32 létu lífið. Um borð í skipinu voru 4.200 manns.
Skipstjórinn, Francesco Schettino, sigldi skipinu of nálægt ströndinni, án heimildar. Hann og Ciro Ambrosio, fyrsti stýrimaður, voru fljótlega eftir slysið handteknir en þeir þóttu ekki bregðast við með fullnægjandi hætti þegar ljóst var í hvað stefndi. Þeir yfirgáfu skipið áður en þeir höfðu gengið úr skugga um að allir væru farnir frá borði. Skipstjórinn situr í stofufangelsi og sætir ákæru fyrir manndráp af gáleysi.
Gríðarlegur kostnaður
Verkfræðingar hafa núna í nokkra mánuði unnið hörðum höndum að því að reikna út hvernig best sé að fjarlægja þetta risastóra skemmtiferðaskip af strandstað. Skipið marar í hálfu kafi, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Talið er að kostnaðurinn við það eitt að bjarga skipinu hlaupi á 38 milljörðum íslenskra króna. Engir smáaurar það. Það eru fyrirtækin Titan og Micoperi sem skipuleggja björgunina en aldrei áður hefur verið gerð tilraun til að koma skipi af þessari stærðargráðu á réttan kjöl.
Eins og 18 stórir togarar
Eins og áður segir er skipið engin smásmíði. Það er 290 metrar á lengd og 35,5 metrar á breidd. Heildarþyngd skipsins er 144 þúsund brúttótonn. Til samanburðar má nefna að stærsta skip íslenska flotans, Samherjaskipið Kristína EA, er tæplega 8 þúsund brúttótonn. Þyngd Costa Concordia samsvarar því 18 slíkum togurum.
Skipið verður fest við land með ógnarsterkum stálvírum svo það hreyfist ekki á meðan unnið er við það, en eins og sjá má á meðfylgjandi teikningum verður pallur byggður undir skipið. Á honum mun það sitja uns því verður hleypt á flot aftur.
Rifið í brotajárn
Það var í lok mars sem vinnu lauk við að dæla olíunni úr skipinu, um 2.300 tonnum. Með því tókst að koma í veg fyrir meiri háttar umhverfisslys. Skipið er annars ónýtt eftir volkið í fjöruborðinu en það verður flutt af slysstað til hafnar á Ítalíu. Þar verður það rifið niður í brotajárn.
Gert er ráð fyrir því að björgunin taki marga mánuði en stefnt er að því að verkinu ljúki fyrir árslok.
