
Romney gagnrýnir afstöðu Obama til Ísraelsríkis
17. júní 2012 › 18:06Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, gagnrýndi Barrack Obama Bandaríkjaforseta harðlega fyrir afstöðu sína gagnvart Ísraelsríki í ræðu sem hann hélt á samkomu heittrúaðra íhaldsmanna í gær.
Romney sagði að Obama væri hræddari um að Ísrael réðist inn í Íran heldur en að Íran þróaði kjarnorkuvopn.
Þegar hann var spurður hvernig hann hygðist styrkja tengslin við Ísraelsríki sagði Romney: „Ég held að það mætti bara líta á það sem forsetinn hefur gert og gera hið þveröfuga.“ Romney virðist vera umhugað um að höfða til íhaldssamra Bandaríkjamanna.
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
