Kvensköpum skolaði á land

17. júní 2012 › 19:25

Feðgunum Grétari Erni og Daða Snæ varð ekki um sel þegar þeir rákust á afar sérkennilegan hlut í fjöruferð á Reykjafirði um helgina. Frá þessu er greint á vestur.is en þar kom fram að Daði Snær hefði ætlað að handleika hlutinn en faðirinn bannað honum það, enda var honum ljóst að hér var enginn venjulegur hlutur á ferðinni heldur eins konar eftirlíking af æxlunarfærum kvenna

Grétar segist enga hugmynd um það hafa hvers vegna þessi hlutur endaði í fjörunni. „Það er margt sem endar í fjörunni án frekari skýringa og verður ímyndunaraflið oft að ráða hver sagan á bak við hlutinn er.“

Ekki er vitað til þess að kynlífstækjum hafi áður skolað á land við Reykjafjörð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.