Frank Michelsen.

„Ég hélt það væri búið að skjóta son minn“

13. júní 2012 › 16:36

„Ég lít upp og horfi beint inn í byssu,“ sagði Frank Michelsen úrsmiður fyrir héraðsdómi nú í dag. Þar fór fram aðalmeðferð í máli tveggja manna sem grunaðir eru um að hafa tekið þátt í ráninu í verslun hans á Laugarveginum í fyrra. Þeir heita Grzegorz Marcin Nowak og Pawel Jerzy Podburaczynski. Frank bar vitni fyrir dómi gegn mönnunum sem setið hafa niðurlútir í dómssalnum frá því um klukkan eitt í dag.

Blaðamaður, sem var í réttarsalnum, segir að Frank hafi gengið hnarreistur í salinn og að hann hafi horft á ræningjanna þegar hann gekk inn. Þeir hafi ekki litið upp. Hann lýsti því þegar ræningjarnir æddu inn í verslunina og hafi skipað honum að leggja niður. „Ég hélt þetta væri grín,“ sagði hann meðal annars.

Tíminn stóð í stað

Frank sagði frá því að hann hefði heyrt mikinn hvell, þar sem hann lá á gólfinu, og að hann hafi óttast að þeir hefðu hleypt af skoti. „Ég hélt það væri búið að skjóta son minn eða stúlkuna sem vinnur hjá okkur,“ sagði hann. Hann bætti við að hann hefði heldur viljað að þeir hafi skotið sit.

Frank sagði að tíminn hafi liðið hægt á meðan á þessu stóð.

Frank bar fyrir dómi að hann ætti erfitt með að treysta fólki eftir atvikið. Ef einhver kæmi inn í búðina með hettu eða með einhver læti þá yrði hann óttasleginn.

Starfsstúlka í versluninni, sem var bakatil á meðan ráninu stóð, sagðist hafa heyrt læti þegar mennirnir komu inn í verslunina. Hún hafi heyrt þá öskra „Get down, get down!“ en síðan hafi hún heyrt mikinn hvell. Hún sagðist hafa haldið að búið væri að skjóta Frank. „Og ég hélt að við værum næst,“ sagði hún.

Höfuðpaur frá Póllandi

Marcin Tomasz Lech, sem dæmdur var á dögunum í fimm ára fangelsi fyrir aðild sína að málinu, bar einnig vitni í dag. Hann sagði að glæpamaður í Póllandi hefði skipulagt ránið en gat ekki sagt til hans því hann sagðist óttast um öryggi sitt. Hann ætlaði sér að snúa heim til Póllands eftir afplánun dómsins og þess vegna gæti hann ekki sagt hver maðurinn væri. Hann hefði staðið í þeirri trú um að um væri að ræða lítið og einfalt innbrot en annað hafi komið í daginn. Saksóknari gekk hart að honum að segja til mannsins og Marcin spurði dómarann hvort hann þyrfti að svara þessu. Úr varð að það gerði hann ekki.

Framburður Marcin fyrir dómi í dag var ekki samhljóða framburði við skýrslutöku lögreglu á fyrri stigum málsins. Þar sagði hann meðal annars að mennirnir tveir, sem nú sæta ákæru, hefðu skipulagt ránið. Spurður út í þann vitnisburð sinn sagði Marcin að á þeim tíma hefði lögreglan ekki verið búin að hafa hendur í hári þeirra tveggja. Hann hafi ekki trúað því að þeir myndu nást. Því næst bað hann félaga sína afsökunar á því að hafa kennt þeim um að hafa skipulagt ránið. Þeir litu aldrei upp en réttarhaldið fór fram með aðstoð túlks.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.