
Grunuð um akstur undir áhrifum fíkniefna
10. júní 2012 › 08:45Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna, að því er fram kemur hjá lögreglu. Kona um tvítugt var meðal annars handtekin rétt eftir átta og flutt til sýnatöku á lögreglustöðina í Reykjavík.
Þá var þrítugur maður stöðvaður í Hafnarfirði upp úr klukkan tíu og rétt fyrir ellefu var fertugur karlmaður stöðvaður í Kópavogi. Þeir voru báðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Mennirnir voru handteknir og fluttir á lögreglustöð. Lögregla segir þau öll hafa verið frjáls ferða sinna að sýnatöku lokinni.
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
