
Andrúmsloft uppgjafar á Spáni
10. júní 2012 › 11:05Konan á bakvið búðarborðið í Valpan bakaríinu í Madríd var að ræða við einn viðskiptavin sinn um harkalegann veruleikann sem margir lifa við í landinu, þegar blaðamann Guardian bar að garði. Spánn er fjórða stærsta hagkerfi evrusvæðisins en ríkisstjórn landsins hefur beðið um að fá hundrað milljarða evra að láni úr bjargráðasjóðum til að forða sér frá hruni. Blaðamaður Guardian, Giles Tremlett skrifar um veruleika þeirra sem búa í höfuðborg landsins í grein á Guardian.
„Þetta er eini dagur vikunnar sem ég fæ frí,“ sagði viðskiptavinurinn, þjónustustúlka sem var ennþá með bifhjólahjálminn á hausnum. „Vinur minn fann sumarvinnu sem þjónn og það er sama sagan þar. Sex daga vinnuvika og átta tíma vaktir sem á endanum verða níu tímar án yfirvinnu, en hún kvartar ekki, hún er með vinnu.“ „Það er sama hér. Þeir hafa skorið niður launin,“ sagði aðstoðarmaður bakarans, á meðan hún útdeildi sætabrauði. „Það er kominn tími til þess að einhver rísi upp gegn þessu öllu.“
Luis De Guindos, fjármálaráðherra Spánar, tilkynnti á blaðamannafundi í Madríd síðdegis í gær að Evrópusambandið myndi veita Spáni 100 milljarða evra lán. Spánn er fjórða ríkið á evrusvæðinu sem óskar eftir fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu, en jafnframt stærsta ríkið sem biður um slíka aðstoð. Ólíkt Grikklandi, Írlandi og Portúgal mun Spánn hins vegar ekki þurfa að undirgangast sérstaka efnahagsáætlun í samstarfi við sjóðinn.
Blaðamaður Guardian segir að Í Madríd, höfuðborg landsins, sé andrúmsloftið fullt uppgjafar, þar finnist lítill uppreisnarandi. Handan við hornið frá bakaríinu hittir blaðamaður ungan sendil sem segir sína skoðun á ástandinu. „Ég skil þetta eiginlega ekki, en ég hef á tilfinningunni að sumir hafi lifað eins og kóngar,“ segir hann og bætir við: „Og við höfum öll verið hálfvitar.“
