Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður

Segir ölvunarakstur „geta hent alla“

10. júní 2012 › 14:01

Sveinn Andri Sveinsson hæstarréttarlögmaður stígur fram á Facebook og ver vin sinn Höskuld Þórhalsson, þingmann Framsóknarflokksins, en spjót fjölmiðla hafa beinst að honum undanfarna daga. Höskuldur var sviptur ökuréttindum á mánudaginn síðastliðinn vegna ölvunaraksturs. Í samtali við DV sagðist hann ekki muna hversu mörg rauðvínsglös hann hefði drukkið.

„Höskuldur Þórhallsson vinur minn er ekkert minni maður eða síður trúverðugur sem stjórnmálamaður þó hann hafi ekið undir áhrifum áfengis,“ segir hæstarréttarlögmaðurinn á Facebook síðu sinni. Þá segir hann að slíkt geti hent alla. „Hann bara tekur afleiðingum þess eins og aðrir. Mér sýnist hann gera það af reisn. Góður drengur.“

„Ég man ekki hvað rauðvínsglösin voru mörg en þessi mistök eru ekki í ætt við það sem þeir sem eiga við raunveruleg drykkjuvandamál að stríða glíma við,“ sagði Höskuldur í samtali við DV á dögunum. Sagðist hann ekki telja sig eiga við áfengisvandamál að stríða. Hann hyggst halda áfram að starfa sem þingmaður þrátt fyrir ölvunaraksturinn. Sagðist hann miður sín yfir atvikinu og að þetta myndi „aldrei koma fyrir aftur.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.