Lárus, fimm ára leikskólanemi, átti flöskuskeytið sem fannst í fjöru á Nýfundnalandi.

Flöskuskeytið fannst í Kanada

29. maí 2012 › 06:00

Fyrir þremur árum fundu nokkrir krakkar af leikskólanum Holti í Reykjanesbæ flöskuskeyti þar sem þau voru í fjöruferð með kennara sínum. Þeim þótti flöskuskeytið afar spennandi og langaði sjálfum mikið að senda svoleiðis líka, í von um að einhver fyndi það síðar. Með hjálp leikskólakennara síns, Sigurbjartar Kristjánsdóttur, ritaði hvert og eitt þeirra bréf og teiknaði mynd. Bréfin og myndirnar voru síðan plöstuð og sett í flösku. Síðan var arkað niður í fjöru, en einnig fengu börnin hjálp frá sjómanni, föður eins barnsins. Hann fór með nokkur flöskuskeytanna á sjóinn og henti þeim frá borði þar sem þau hafa síðan verið á reki. Eitt flöskuskeytanna rak síðan nýlega á land hinum megin á hnettinum, við lítinn bæ í Kanada sem heitir Twillingate.

Þrjú ár í sjónum

Það var flöskuskeyti Lárusar sem fannst en Lárus sem nú er fimm ára var þriggja ára þegar hann sendi skeytið. „Það er búið að vera þrjú ár í sjónum,“ sagði Lárus þegar blaðamaður ræddi við hann um hinn merka fund. „Ég var bara ánægður,“ segir hann aðspurður hvernig honum hafi liðið þegar hann fékk fréttirnar að flöskuskeytið hefði fundist og bætir við: „Það var stelpa sem fann það í Kanada.“ Stúlkan sendi síðan Lárusi bréf og sagði honum frá sér og fjölskyldu sinni í Kanada en hann segist ekki alveg vita hvort þau verði kannski pennavinir í framtíðinni.

Lárus fer í sex ára bekk í haust og hlakkar mikið til. „Ég fer í Akurskóla, það er grunnskóli,“ segir hann spenntur. Í framtíðinni ætlar hann að senda fleiri flöskuskeyti en segist ekki viss um að þau finnist aftur í landi svona langt í burtu. „Fer þetta í fréttirnar,“ spurði hann blaðamann að lokum áður en hann fór aftur til vina sinna á leikskólanum.

Þetta er aðeins brot af greininni sem birtist í DV. Áskrifendur geta lesið hana í heild á DV.is með því að smella á meira.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.