
Sturlaði nakti maðurinn urraði á lögreglu
28. maí 2012 › 22:32Sturlaði nakti maðurinn sem borðaði andlit annars manns urraði á lögreglumann sem skipaði honum yfirgefa fórnarlambið. Það var á laugardag sem árásin átti sér stað á hjólreiðastíg við Biscayne-breiðgötuna í Miami í Bandaríkjunum.
Fjölmiðlar vestanhafs greina frá frásögn vitnis á vettvangi sem kom að árásinni. „Hann reif hann í sig. Ég sagði honum að hætta en hann hélt áfram að rífa í sig andlit mannsins,“ sagði Larry Vega, sem gerði lögreglu viðvart, við sjónvarpsstöðina WSVN-Fox 7.
Lögreglumaður sem kom á vettvang bað árásarmanninn ítrekað um að hætta. Larry Vega sagði árásarmanninn hafa urrað á lögreglumanninn og haldið áfram að tyggja á andliti fórnarlambsins og hætti ekki þó svo að lögreglumaðurinn hefði skotið hann. „Hann stóð bara þarna með hold í munninum og urraði,“ sagði Vega.
Vega sagði lögreglumanninn hafa því næst skotið árásarmanninn til bana, en það þurfti nokkur skot til þess.
„Þetta er það viðurstyggilegasta sem ég hef séð. Maður sér þetta í kvikmyndum en þegar maður verður vitni að slíkum atburði í alvöru þá hefur það sláandi áhrif,“ sagði Vega.
Það var bandaríska dagblaðið The Miami Herald sem greindi fyrst frá þessari hrottafengnu árás. Þar kom fram að árásarmaðurinn hefði verið nakinn á meðan hann réðst á fórnarlamb sitt. Er talið að hann hefði þjáðst af geðrofi sökum mikillar eiturlyfjaneyslu.
Atvikið náðist að hluta til á eftirlitsmyndavél á byggingu nærri höfuðstöðvum The Miami Herald en þar sjást naktir fótleggir árásarmannsins og fórnarlambsins hlið við hlið eftir að lögreglumaðurinn hafði skotið árásarmanninn til bana.
Fórnarlambið var flutt á sjúkrahús en andlit þess reyndist það illa farið að erfitt reyndist að bera kennsl á það. Lögreglan telur þó að fórnarlambið sé heimilislaust.
