
Russell Crowe hjólaði að Bláa Lóninu um helgina
8. ágúst 2012 › 08:18Stórleikarinn Russell Crowe er sannkallaður íþróttakappi. Ásamt því að hafa stundað æfingar í Mjölni af kappi hefur hann verið duglegur að fara í hjólreiðatúra. Á sunnudaginn hjólaði hann svo rétt rúma fimmtíu kílómetra, frá 108 Reykjavík og alveg að Bláa Lóninu.
Frá þessu greindi hann á Twitter síðu sinni í gær. Þar segir: „Sunnudagur 50,20 km hjólreiðatúr frá Reykjavík 108 að Bláa Lóninu. Í gær, ýmsar þyngdir, þurfti meðal annars að burðast um með hnullung sem var 72 kíló+.“
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
