Bað hennar í brekkusöngnum

7. ágúst 2012 › 10:22

Það eru margir sem geta ekki hugsað sér að vera annarstaðar en í brekkunni í Herjólfsdal á sunnudagskvöldi verslunarmannahelgarinnar. Á annan tug þúsunda manns eru yfirleitt samankomnir í dalnum og syngja saman í brekkusöngnum, fylgjast með brennunni og blysum og njóta stundarinnar.

Í meðfylgjandi myndbandi sést afar ástfangið par svo sannarlega njóta stundarinnar, en líklegast hverfur þetta kvöld þeim seint úr minni.

Í myndbandinu sést Biggi biðja Auði um að giftast sér og þó að það heyrist afar illa hvað þeim fer á milli þá virðist Auður vera afar hamingjusöm með bónorðið og tilfinningarnar bera hana nánast ofurliði. Vinir fagna með þeim og verður hávaðinn í kring um þau næstum ærandi, svo spennt eru þau fyrir hönd nýtrúlofaða parsins.

Sjón er sögu ríkari og bónorðið má sjá hér fyrir ofan.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.