Gaman hjá Tom Cruise í Disney World
3. ágúst 2012 › 13:59Þrátt fyrir erfiðan skilnað foreldra hennar virtist Suri Cruise skemmta sér vel í sundlaug í Disney World í Flórída. Hún var þar ásamt föður sínum, Tom Cruise og skemmtu þau sér ærlega í sundlauginni. Suri sýndi þar skemmtilega takta og virtist ekki taka það mjög nærri sér að ljósmyndarar smelltu af sér myndum. Tom Cruise var sjálfur alsæll og fylgdist stoltur með stelpunni sinni og kastaði henni til og frá í lauginni. Cruise taldi það einnig ekkert eftir sér að vera í garðinum sem var þétt skipaður almenningi og heilsaði og gaf eiginhandaáritanir handa þeim sem vildu.
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
