
Strákakvöld hjá Pattinson
10. ágúst 2012 › 18:00Robert Pattinson er greinilega búinn að fá nóg af því að liggja heima og sleikja sárin eftir framhjáhald kærustunnar, Kristen Stewart, því til hans sást í hópi góðra vina um helgina þar sem þeir djömmuðu og djúsuðu fram eftir nóttu.
Samkvæmt heimildamanni People fékk Robert þrjá félaga frá Bretlandi til sín í heimsókn. „Þeir fóru á tónleika og í partí á eftir. Stelpurnar létu hann ekki í friði. Hann hló og brosti allan tímann en hélt sig þó fjarri dansgólfinu. Hann var bara hress og vingjarnlegur við alla.“
Kunnugir segja að leikarinn, sem er 26 ára, hafi verið niðurbrotinn síðan hann komst að framhjáhaldi Stewart en eins og flestir vita hélt leikkonan fram hjá honum með gifta kvikmyndaleikstjóranum Rupert Sanders.
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
