Öryggis­verðir sagðir hafa límt fyrir öryggis­mynda­vélar fyrir Cru­ise

11. júlí 2012 › 13:29

Öryggisvörðum Tom Cruise og Katie Holmes var gert að líma svart einangrunarlímband yfir öryggismyndavélar á Hilton Nordica Hotel hér á Íslandi þegar leikaraparið fyrrverandi dvaldi þar. Þetta var gert til að vernda einkalíf stjarnanna en fyrst og fremst til þess að koma í veg fyrir að vandamál þeirra hjónanna yrðu ekki opinberuð. Það var Cruise mikið hjartans mál að slíkt læki ekki í fjölmiðla. Radar Online greinir frá þessu.

Eins og löngu er orðið frægt kom Tom Cruise kom hingað til lands til þess að taka upp hluta af kvikmyndinni Oblivion. Fyrstu daga Cruise hér á landi dvöldu eiginkona hans, Katie Holmes og dóttir þeirra Suri einnig hér á landi ásamt starfsfólki þeirra hjóna.

Þegar Cruise hélt til Akureyrar til að taka upp atriði í kvikmyndinni flugu þær Katie Holmes og Suri til New York þar sem Katie sótti um skilnað frá Cruise og krafðist þess að fá fullt forræði.

Þetta mun hafa komið öllum á óvart en hefur skilnaðinum verið lýst sem þaulskipulögðum flótta Katie Holmes frá Tom Cruise. Dvöl þeirra á Hilton Nordica reyndist því vera síðustu stundir hjónabands þeirra.

Radar Online greinir frá því að Cruise og Holmes hafi tekið besta herbergi hótelsins á leigu. Kostnaðurinn við eina nótt á hótelinu séu um þúsund dollarar, eða tæplega 130 þúsund krónur íslenskar. „Þetta er besta hótelherbergi á Íslandi,“ segir Radar Online heimildarmaðurinn.

Segir hann að öryggisverðirnir hafi látið líma fyrir öryggismyndavélar sem eru á gangi hótelsins með svörtu límbandi. Í National Enquirer er greint frá því að blaðamaður tímaritsins hafi heimsótt hótelherbergið og tekið eftir því að svart límband var enn á myndavél.

Segja heimildarmenn Radar Online og National Enquirer ýmist að þetta hafi verið gert til að fela brotalamir í hjónabandi þeirra Cruise og Holmes eða til að fela það að Holmes deildi ekki svefnstæði með Cruise heldur svaf í öðru herbergi eða öðru rúmi en hann.

Radar online

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.