„Þau virtust svo hamingjusöm þetta kvöld“

1. júlí 2012 › 19:04

Tom Cruise hefur forðast New York-borg eins og heitan eldinn á undanförnum árum en eiginkona hans, Katie Holme, hefur farið fram á skilnað við Cruise og farið með málið fyrir dómstól þar í borg. Allt bendir til að skilnaðurinn hafi komið Cruise mikið á óvart en brestir voru þó komnir í sambandið áður en Holmes sótti um skilnað í vikunni.

Flutt í eigin íbúð í New York

Samkvæmt bandarísku pressunni fór Holmes með málið fyrir dómstól í New York vegna þess að hún vill fá fullt forræði yfir dóttur þeirra hjóna, Suri Cruise. Dómstólar í borginni eru þekktir fyrir að veita ekki sameiginlegt forræði til foreldra sem geta sjálfir ekki komið sér saman um slíkt. Það eru þó skattarnir sem hafa fælt Cruise sjálfan frá borginni en þar eru rukkaðir hærri skattar en víða annarsstaðar í Bandaríkjunum.

Cruise hefur þráast við að skrá sig til heimilis í borginni en hann tók íbúð á leigu fyrir eiginkonu sína í New York. Þar hafa þau dvalið en samkvæmt bandarískum fjölmiðlum deildu þau ekki herbergi í íbúðinni. Hann hefur þó væntanlega ekki reiknað með því að vera þeirra í íbúðinni hefur gert Holmes kleift að fara með skilnaðarmálið fyrir dómstóla í borginni. Holmes er núna flutt út úr íbúðinni og komin í aðra íbúð í New York.

Eins og hver önnur hjón

Tom Cruise og Katie Holmes eyddu síðustu dögunum áður en Holmes sótti um skilnað hér á landi. New York Daily News greinir frá því í dag að sjónarvottar á veitingastaðnum Sushi Samba í Reykjavík hafi upplifað Cruise og Holmes eins og hver önnur hjón þegar stjörnuparið borðaði þar rétt fyrir skilnaðinn. „Þau voru eins og hver önnur ung fjölskylda sem kemur hingað inn. Það er eiginlega ekki hægt að hugsa til þess að þau voru að fara að skilja, þau virtust svo hamingjusöm þetta kvöld,“ segir sjónvarvottur sem var á veitingastaðnum í samtali við blaðið.

Mbl.is birti einnig myndir af Cruise og Holmes í síðasta mánuði þar sem þau gengu saman á Þingholtsstræti með kaffi frá Te og Kaffi en þá var ekki annað að sjá á þeim hjónum að þau væru glöð í bragði.

Fór frá Íslandi og skilaði inn skilnaðarpappírunum

Í yfirlýsingu talsmanns Tom Cruise vegna skilnaðarins kemur fram að krafa Holmes um skilnað hafi komið Cruise í opna skjöldu. Skilnaðarpappírarnir voru lagðir fram fyrir dómstól nafnlaust stuttu eftir að Holmes hafði yfirgefið Ísland en Cruise var sjálfur enn staddur við tökur á kvikmyndinni Oblivion hér á landi. Fréttir af skilnaðinum bárust þó fljótt og hafa lögfræðingar hjónanna nú staðfest fregnirnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.