Alþingismaður stendur fyrir þríþraut

9. júní 2012 › 07:55

„Í mínum huga snýst líkamsrækt frekar um það að geta gert það sem mann langar frekar en að líta öðruvísi út. Gott útlit er fylgifiskur hreyfingar en hreyfingin sjálf á að vera markmiðið. Við erum gerð til þess að hreyfa okkur og þess vegna líður okkur vel eftir að hafa reynt á okkur. Þríþraut er frábær og fjölbreytt leið til að blanda saman ólíkum æfingum og halda sér þannig í góðu formi,“ segir alþingismaðurinn Róbert Marshall en hann og eiginkona hans Brynhildur Ólafsdóttir standa fyrir þríþraut þann 30. júní.

„Við byrjum undir Brimlárhöfða rétt utan við Grundarfjörð þar sem ætlunin er að synda þvert yfir Lárvaðalinn sem er um 520 metrar. Vatnið er tiltölulega grunnt og verður því vonandi orðið sæmilega hlýtt þarna um mitt sumar. Á bakkanum bíða hjólin og við leggjum í hann austur í átt að Grundarfirði og hjólum sem leið liggur í gegnum bæinn, út að Hraunsfirði og svo í gegnum Berserkjahraun í átt að Stykkishólmi,“ segir Róbert og bætir við að svo verði síðustu 10 kílómetrarnir hlaupnir inn í Stykkishólm þar sem keppni lýkur við sundlaugina.

„Við fáum einhvern velviljaðan til að sækja hjólin og skutla þeim til baka. Vonandi náum við að setja upp eina eða tvær vatnsstöðvar á leiðinni og auðvitað tímatöku við lok keppni. Þetta er fyrst og fremst hugsað til að hafa gaman af því og reyna sig við erfiða áskorun í góðra vina hópi. Um kvöldið grillum við, syngjum og tröllum í náttbjartri útilegustemningu við upphafsreitinn úti í Lá.“

Róbert hefur tvisvar áður haldið slíka víðavangskeppni en hingað til hafa aðeins tveir þátttakendur verið með í keppninni. Nú hafa hins vegar yfir 60 manns skráð sig svo ljóst er að um alvöru keppni verður að ræða þótt skemmtunin eigi vissulega að vera í fyrsta sæti. „Mér finnst gott að hafa langtímamarkmið eins og maraþon eða Laugavegshlaup til að stefna og þess vegna ákvað ég að efna til Snæfellsnesþristsins í byrjun ársins. Ég er líka að æfa fyrir Laugaveginn um miðjan júlí og þetta fellur vel að því hlaupi. Maður kemur sér ekki í form með stuttu átaki heldur lífsstílsbreytingu. Þetta er hugsað fyrst og fremst til að hafa gaman af þessu og allir mega taka þátt.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.