
Adele ólétt
30. júní 2012 › 11:36Söngkonan Adele hefur staðfest að hún á von á barni með kærasta sínum Simon Konecki. Staðfestingin var sett á heimasíðu söngkonunnar á föstudag. Stuttu eftir að tilkynningin var birt hrundi vefsíðan undan álagi.
„Það er mér sönn ánægja að tilkynna að við Simon eigum von á okkar fyrsta barni saman,“ sagði Adele í tilkynningunni. „Ég vildi að þið fenguð fréttirnar frá mér. Augljóslega erum við himin lifandi og spennt en vinsamlegast virðið einkalíf okkar á þessum yndislegu tímum,“ bætti hún við.
Ekki liggur fyrir hvenær von er á barninu.
Adele er ein af vinsælustu söngkonum heims í dag og en hún vann til sex Grammy-verðlauna fyrir nýjustu plötuna sína. Meðal annars fékk hún verðlaun fyrir plötu ársins.
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
