
Hjólar fyrir veik börn
27. júní 2012 › 14:35„Allt undir tólf dögum er ásættanlegt,“ segir Róbert Þórhallsson sem ætlar í ágúst að hjóla hringinn í kringum landið til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Hugmyndina fékk hann þegar Haraldur Hreggviðsson gerði slíkt hið sama árið 2010.
Hann hjólaði á tólf dögum og Róbert hyggst toppa það. „Það voru nokkrir sem hjóluðu með honum síðasta spölinn og þá sagði ég að ég myndi gera þetta líka,“ segir hann og ætlar sér svo sannarlega að standa við það og hjóla þá 1.332 kílómetra sem þjóðvegur 1 er. „Vonandi á innan við viku,“ segir hann.
Þessa dagana er hann á fullu að undirbúa langferðina. „Ég hjóla slatta á dag til að undirbúa þetta. Um helgina hjólaði ég til dæmis 200 kílómetra,“ segir Róbert. Hann hefur ekki hjólað áður sömu vegalengdir og hann ætlar sér að gera í hringferðinni. „Nei, en ég hef verið á hjóli síðustu ár svona milli vinnu og heimilis.“ Róbert hefur til margra ára styrkt krabbameinssjúk börn. „Þetta byrjaði ein jólin fyrir 8–9 árum þegar mig langaði að gera jólagóðverk. Þá fór ég í jólakortasöluna hjá Styrktarfélaginu og hef verið í henni um jól síðan.“
Hann segir þetta vera sér mikið hjartans mál. Faðir Róberts dó úr krabbameini þegar Róbert var aðeins 10 ára. „Þetta snertir mínar taugar líka og skiptir máli. Það er svo gott starf sem er unnið þarna og mig langaði til að hjálpa meira til.“ Hægt verður að heita á Róbert á næstu dögum og vonast hann til að safna sem mestu fyrir málefnið. „Haraldur safnaði tveimur milljónum en ég vil ekki vera með neinar yfirlýsingar, vonandi safna ég bara sem mestu.“ Hægt er að fá nánari upplýsingar um ferðina á Facebook undir nafninu: Hjólað til góðs - Hringferð um Ísland fyrir SKB. viktoria@dv.is
