
„Hann var sjúklega fyndinn“
27. júní 2012 › 11:25„Ég var bara á ljósunum og mjög utan við mig þegar ég sá náunga sem var mjög rauður,“ segir Elísabet Margeirsdóttir í samtali við DV. Eins og DV fjallaði um í gær hefur mynd sem hún tók af manni í grænum samfestingi, þar sem hann gengur þvert yfir Miklubrautina á grænu ljósi vakið mikla athygli á Facebook.
Maðurinn stóð í fyrstu mjög alvarlegur á rauðu ljósi á gatnamótunum, í rauðum samfestingi, með hettu og í svörtum tátiljum. Þegar græna ljósið síðan birtist var hann fljótur að skipta um galla og vippa sér í grænan samfesting en hann gekk síðan í honum yfir brautina, eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
„Hann var bara sjúklega fyndinn,“ segir Elísabet en bætir við að hún viti ekkert um manninn, hvaðan hann komi, eða hvert hann hafi verið að fara. „Þetta er einhver flippari, þetta leit allavega þannig út,“ segir hún og bætir við að fleiri ættu að taka græna karlinn sér til fyrirmyndar: „Fleiri ættu að stunda þetta, skemmta fólki á gatnamótum, þegar það er á leiðinni úr vinnu.“
Elísabet segir að í fyrstu hafi hún einfaldlega starað á manninn. „Ég bara starði á manninn, vissi ekki alveg hvort það væri í lagi með hann eða hvað. Síðan byrjaði hann allt í einu að klæða sig úr rauða gallanum og var ógeðslega snöggur að því, en hann var kominn í græna gallann á svona fimm sekúndum,“ segir hún og hlær við. Elísabet segir lögreglumennina í bílnum við hliðina hafa hlegið dátt að gjörningnum rétt eins og hún sjálf. „Þeir voru eflaust að spá í hvort þeir ættu að gera eitthvað og hvað það ætti þá að vera?“
