
Íþróttahetjur í sumarfríi
26. júní 2012 › 16:39Nokkrar af helstu íþróttahetjum Akureyrar njóta nú lífsins í sumarfríi í heimabænum. Má þar nefna Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliða í knattspyrnu og handboltamennina Árna Þór Sigtryggsson og Arnór Þór Malmquist.
Þeir félagarnir sáu Þór tapa naumt, 2-3, fyrir KA á fimmtudaginn en fjölmenni var á Akureyrarvelli þegar grannaslagurinn fór fram. Það hefur ekki lagst vel í atvinnumennina sem allir eru grjótharðir Þórsarar.
Aron Einar er næst yngsti landsliðsfyrirliði Íslands í knattspyrnu frá upphafi en aðeins Ásgeir Sigurvinsson var yngri þegar hann bar fyrirliðabandið fyrst, þá tvítugur. Aron Einar er 23 ára en hann hélt einmitt upp á afmæli sitt um helgina. Fyrirliðinn sló upp heljarinnar veislu á Pósthúsbarnum á Akureyri og var engu til sparað í mat og drykk. Á meðal gesta voru fleiri íþróttahetjur og má meðal annars nefna Fannar Þór Friðgeirsson sem er nýbúinn að skrifa undir samning við þýska úrvalsdeildarliðið Wetzlar, Björgvin Hólmgeirsson ÍR-ing sem er nýkominn heim úr atvinnumennsku, Erni Hrafn Arnarsson sem leikur með Emsdetten í Þýskalandi og Valsarana
Magnús Friðrik Einarsson og Gunnar Harðarson, eða „Tango & Cash“ eins og þeir eru jafnan kallaðir, með skírskotun til frægrar amerískrar hasarmyndar sem státaði af Sylvester Stallone og Kurt Russell í aðalhlutverkum.
Mikið stuð var í afmælinu en rapparinn MC Gauti tók lagið auk þess sem norðlenska rappsveitin Skytturnar gerði allt vitlaust.
